Skvísan er komin með glænýtt vefsvæði.
www.blog.central.is/haffah
HAFDÍSARBLOGG 2005
þriðjudagur, maí 24, 2005
Ég verð að viðurkenna það að eftir undanfarnar vikur í málningu, spasli og ryki í nýju íbúðinni þá ber ég mikla virðingu fyrir fólki sem er að byggja. Þessar ltilu breytingar sem við höfum gert er ekkert í samlíkingu við það sem fólk í byggingu þarf að gera, en eftir næstum því 4 vikur, er ég gjörsamlega búin að fá ógeð og vill bara flytja inn núna. Ein ástæðan er sú að maður hefur lítinn tíma til að vinna í íbúðinni í hvert skipti og þess vegna tekur þetta svo langan tíma. En sem betur fer er maður að sjá í annan endann á þessu og núna á bara eftir að leggja parket og þrífa. Svo segi ég bara!!!! Það á nefnilega líka eftir að pakka öllu dótinu niður, þrífa í Bólstaðarhlíðinni og pakka upp úr aftur þegar við erum flutt, ég tala ekki um alla praktísku hlutina, eins og að flytja símann og lögheimilið og allt þetta dúllerí. En þetta hefst allt, það er hægt að gera þetta í rólegheitum verst að ég er að fara í brjálaða vinnutörn á næstu vikum. En ég er samt fegin að öll málningar og rykvinnan er búin, mér finnst það ekki það skemmtilegasta í heimi. Við stefnum allavega að því að flytja um næstu helgi að því að smiðirnir komast ekki fyrr en í lok vikunnar. Jibbý loksins getur maður flutt.
Þetta var svona smá update á íbúðamálunum. Annars er nú mest lítið að frétta, við gerðum lítið annað um helgina en að klára í nýju íbúðinni. Júróvisjónkvöldinu eyddum við tvö heima í rólegheitum, ekkert smá næs, ég var nefnilega ekki heima öll kvöld í síðustu viku, var á 4 kvöldvöktum og í saumaklúbb, og vá hvað maður finnur að heima er best þegar maður hefur ekki getað slakað á lengi.
Og svo er barasta að koma sumar og maður getur ekki annað en verið í góðu skapi, þótt maður hafi lítinn tíma til að sleikja sólina þessa dagana.
Gleðilegt sumar öll sömul.
föstudagur, maí 20, 2005
Júróvisjón hvað????
Jæja þá er hinni umtöluðu forkeppni í júróvsjónkeppninni margrómuðu, lokið. Það er svo fyndið hvað við verðum alltaf hissa ef við komumst ekki áfram, við stöndum nú auðvitað alltaf í þeirri trú, að við séum, fallegust, klárust og best í heiminum hérna á litla skerinu. Og eftir að hafa horft á öll þessi lög í gær, er nú alveg nokkuð til í því, sum lögin og búningarnir voru alveg hræðileg og já ég var svekkt yfir að Selma skyldi ekki komast áfram. Mér fannst þetta eitt besta framlag okkar hingað til, og ef Selma getur ekki komið okkur upp úr forkepnninni, hver getur það þá?????? En nóg um það, maður heldur bara með Noregi og Danmörku í staðinn. Norsararnir rokka feitt.
Nú er ég á 16 tíma vakt, ákvað að taka eina svona aukavakt og þetta er sennilega sú síðasta þangað til ég kem aftur úr barnseignarleyfi. Verð síðan í fríi um helgina og þá er bara harkan sex að klára að mála íbúðina. Og þrífa allt rykið og drulluna, jibbý ég er strax farin að hlakka til að flytja. :)
þriðjudagur, maí 17, 2005
Halló skralló, jæja það er svosem ekki mikið fréttnæmt hjá skvísunni, er mikið á kvöldvöktum í þessari viku, er eiginlega hætt á næturvöktum nema stundum um helgar. Verð að passa upp á kúlubúann :)
Við Siggi eyðum öllum okkar frítíma í nýju íbúðinni, þetta er allt að koma, ég hringdi í tryggingafélagið í dag, það varð nefnilega vatnsskaði þegar fyrri eigendurnir voru að skila af sér íbúðinni og það þarf að skipta um parket á hluta af íbúðinni. Smiðirnir munu síðan hafa samband við mig, ég vona að það verði ekki löng bið eftir þeim þar sem við erum að verða búin með að mála. Það hefur tekið aðeins lengri tíma en við bjuggumst við að taka íbúðina í gegn, maður gerir alltaf meira en maður ætlar sér, ég er núna að mála alla gólflista, það var ekki planið en það veitir ekkert af, maður vill frekar hafa þetta almennilegt og flytja inn viku seinna. Þannig að það verður ekkert júróvisjón partý hjá okkur þar sem við flytjum sennilega ekki fyrr en í næstu viku.
Það á líka eftir að þrífa allt, allt gjörsamlega í ryki og skít, og svo þarf auðvitað að pakka dótinu okkar niður það tekur sinn tíma.
Þetta hefst allt :)
sunnudagur, maí 15, 2005
Loksins er þetta ljóta próf búið, kláraði á föstudaginn. Ég vill helst ekki mikið tjá mig um gengi mitt í prófinu, þar sem þetta var krossapróf sem geta verið ansi snúin, en ég get nú samt sagt að mér gekk sæmilega, ég var allavega ekki alveg að deyja í prófinu, gat nú svarað helling. En maður veit svo sem aldrei hvað gerist, ég býst nú samt ekki við því að vera fallin, þá er eitthvað mikið að. En ég get ekki sagt að þetta hafi verið létt próf.
Við mamma fórum síðan á Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu um kvöldið og ég verð að viðurkenna það að ég var ansi þreytt, dottaði þegar 10 mínútur voru eftir af leikritinu, alveg uppgefin eftir allan lesturinn og stressið sem því fylgdi. En þetta var frábært leikrit og ég mæli með því.
Nú er baran harkan sex á hverjum degi að vinna í íbúðinni svo við getum einvherntímann flutt, ég er einmitt að fara núna og mála og laga, Siggi er að fara að vinna í dag, hvítasunnudag, hann þarf að klára eitthvað verkefni í vinnunni, á meðan verð ég að dunda mér í íbúðinni.
Verður ekki lengra í dag, verð að drífa mig í íbúðina.
Adios
sunnudagur, maí 08, 2005
Nú er þessi vika komin eins og hinar ég enn og aftur komin á næturvakt að drekka te. En það varður sko ekki slappað mikið af þessa nótt, ég ætla nefnilega að gera heiðarlega tilraun og lesa fyrir próf, sú er bjartsýn, en sjáum nú til, ég efast um að það verði eitthvað úr því. Þessar næturvaktir fara eitthvað að minnka og núna er ég bara á næturvöktum um helgar, þannig að ég verð bara á næturvöktum 6 eða 9 hverju viku, frúin er nefnilega með barni :) og verður að passa upp á bumbuna og gíra aðeins niður í ofvirkninni. Þetta eru svosem engar fréttir að það sé von á erfingja fyrir flesta þá sem lesa þetta blogg, við skötuhjúin erum búin að vera ansi dugleg að auglýsa þetta, liggur við að þetta sé komið í auglýsingarnar í sjónvarpinu :) Það er svaka spenna í gangi, og miklar pælingar hvort maður eigi að fá að vita hvort kynið það verður þegar ég fer í sónarnar eftir nokkrar vikur. Jáhá ég segi fréttir.
Öll síðasta vika fór í endurbætur á íbúðinni, ég kalla þetta nú bara gott hjá okkur, miðað við það að ég ætti að vera að læra og Siggi er búin að klífa hæstu tinda Íslands segi frá því seinna. Við erum semsagt búin að rífa vegginn, mála bæði herbergin og baðið spasla og pússa eins og brjálæðingar. En það er samt eftir að mála loftin inni í stofu og geymsluna, og svo keyptum við þessar fínu græjur á tilboði, bæði ísskáp og þvottavél, og bíða óþreyjufullar eftir því að verða teknar í notkun. Ég get ekki lofað því að það verði mikið gert í næstu viku þar sem ég er að fara í 5 daga lestrarfrí til ömmu upp í sveit, og get ekki stjórnað með harðri hendi, en það er svosem allt í lagi að þetta bíði, það er ekki svo mikið eftir.
Ég ákvað að fara upp í sveit, af því að ég er í 4 daga fríi úr vinnunni, og fínt að anda að sér fersku sveitalofti og njóta góðrar þjónustu ömmu minnar :) Maður á það nefnilega til þegar maður á að vera að lesa undir próf, að byrja að þurrka af efstu skápunum í eldhúsinu, eitthvað sem maður gerir annars ekki, grafa upp eldgamlar myndir frá því ég æfði sund með Ægi og byrja að skoða þær, eða rífa arfa úti í garði sem er ekki einu sinni hjá mér, bara eitthvað annað en að læra, en ég tel að það sé minna áreiti uppi í sveit og hlakka til að fara þangað.
Siggi fór í gær upp á Hvannadalshnjúk með nokkrum vinum sínum og ekki endaði sú ferð vel, þeir lentu í brjáluðu óverði uppi á toppi og voru heppnir að komast niður óhultir og það sem kom þeim niður var GPS tækið Siggi er nýbúinn að kaupa og mér fannst algjör óþörf og peningasóun, en ég er semsagt búin að breyta um skoðun. Svo á leiðinni niður (þeir voru á skíðum) þá slapp Orri vinur hans naumlaega frá því að detta niður í risa sprungu, en skíðið hans datt niður hann var frekar heppinn. Mér leist nú ekkert á þegar Siggi sagði mér frá þessu, ég verð fegin þegar hann kemur loksins heim.
miðvikudagur, maí 04, 2005
Það var þvílæik gleði hérna á mánudaginn þegar launareikningurinn var opnaður. Ég var bara orðinn milli, fékk slatta mikið meira útborgað en ég er vön, meira að segja næstum því helmingi meira en síðast, (þá fekk ég líka lítið). Ég var fyrst viss um að þetta væru mistök hjá skattinum, ég hef svosem lent í því áður, að fá geggjað útborgað og þurfa svo að borga það allt til baka. En nei þetta voru sko engin mistök, það var nefnilega verið að skrifa undir nýja samninga hjá BHM og launin hjá hjúkkum og fleirum hækkuðu aðeins, og það tók gildi í febrúar eða mars þannig að það var reiknað aftur í tímann, plús við fengum eingreiðslu sem launauppbót, svo eru auðvitað 2 aukavaktir inni í þessu, hátíðakaup um páskana sem er slatti og svo milljón kvöld helgar og næturvaktir, þannig að þegar upp er staðið á maður þetta alveg skilið. Þegar maður spáir í því hversu mikil vinna er á bakvið þennan pening er þetta kannski ekki svo mikið miðað við mörg önnur störf. En ég er samt mjög ánægð sérstaklega núna þegar við erum að gera upp íbúð, þetta er lúmskt dýrt, að kaupa málningu, spasl og parket og allskonar smádót sem fylgir þessu. Plús að við þurfum að fjárfesta í ísskáp og þvottavél. Svo er mig að dreyma um að kaupa, sófa og uppþvottavél, en það verður neðar á listanum við nennum ekki að sökkva okkur í skuldir sem er nóg af núna eftir að íbúðin var keypt, ætlum bara að kaupa það sem við höfum efni á til að byrja með.
Nú erum við búin að eyða 2 kvöldum í framkvæmdir og komin vel á veg, búið að brjóta vegginn inn í eldhúsið þannig að það er opið inn í stofu, miklu opnara og flottara, svo erum við að spasla og mála. Þetta tekur allt sinn tíma, en við stefnum að því að flytja í kringum 20 maí. Það tekur líka tíma að pakka niður öllu draslinu sem maður hefur sankað að sér í gegnum tíðina.
Er í fríi núna og á að vera að læra best að koma sér í gírinn.
mánudagur, maí 02, 2005
Ætla bara að láta vita apeins af mér. Það er ansi mikið um að vera hjá minni þessa dagana, fórum í fermingarveislu upp í Skagafjörð núna um helgina, systir mín var að ferma sinn elsta, þetta var rosa fín veisla.
En ég var alveg uppgefin í gær, þetta er löng keyrsla á stuttum tíma, við lögðum nefnilega ekki af stað fyrr en seint á laugardagskvöldið af því að Siggi fór í gönguferð upp á Eyjafjallajökul. Ég eyddi laugardeginum í að læra svaka dugleg og svo fengum við líka afhenta lyklana að nýju íbúðinni okkar, ekkert smá spennandi. En frekar erfitt að fá afhent akkúrat núna þegar ég á að vera að læra, maður getur ekki hamið sig. En ég ákvað semsagt að taka mér frí frá lærdómi í kvöld og við ætlum að byrja að gera íbúðina upp, við byrjum á að rífa niður vegg sem lokar eldhúsið af, svo á að mála öll loftin og einhver herbergi og svo setja nýtt parket. Þetta verður vonandi ekki of lengi gert, maður vill helst flytja strax.
verð að þjóta er í vinnunnni, knús Haffa
